Tækniþjónusta fyrir lítil fyrirtæki. Allt frá netþjónum til notenda.

Sanata er íslenskt tæknifyrirtæki með bakgrunn í innviðum, forritun, gagnagrunnum og Microsoft Azure. Við setjum upp, rekum og bætum kerfin sem fyrirtækið þitt keyrir á, og útskýrum á mannamáli hvað við erum að gera.

Það sem við sjáum um

Microsoft 365 og Entra ID

notendur · aðgangur · öryggi

Azure og netþjónar

flutningur · afritun · kostnaður

Gagnagrunnar og samþættingar

SQL · API · gögn úr Excel

Sérlausnir og sjálfvirkni

forritun · Power Platform

Vefir og hýsing

WordPress · eigin innviðir

Hvað við gerum

Afmörkuð verkefni eða fastur rekstur. Allt byggt á kerfum sem þið eigið eða eruð þegar að greiða fyrir.

Microsoft 365 og Entra ID

365 · Entra ID · Teams · SharePoint

Uppsetning, flutningur úr eldri kerfum og öryggisstillingar eins og tveggja þátta auðkenning. Við förum yfir leyfin svo þú greiðir ekki fyrir það sem enginn notar.

Azure og skýjainnviðir

Azure · netþjónar · afritun

Flutningur netþjóna og þjónusta í Azure, net og aðgangsstýring, afritun og vöktun. Líka yfirferð á Azure-reikningi sem hefur vaxið án þess að nokkur viti af hverju.

Gagnagrunnar og samþættingar

SQL · API · gagnaflutningur

Þegar mikilvæg gögn búa í Excel-skjölum eða kerfin tala ekki saman. Við hönnum gagnagrunna, flytjum gögn og tengjum kerfi saman.

Sérlausnir og sjálfvirkni

forritun · Power Automate · Power Apps

Smærri sérsmíðuð forrit, innri vefir og sjálfvirkni sem tekur við handavinnu sem er endurtekin á hverjum degi.

Rekstur og stuðningur

fastur tengiliður · mánaðarsamningur

Við fylgjumst með uppfærslum, afritun og leyfum og aðstoðum starfsfólk. Einn tengiliður sem þekkir umhverfið ykkar.

Nánar um þjónustuna og hvað er innifalið →

Reynsla úr innviðum og hugbúnaðargerð

Við höfum unnið við rekstur netþjóna og netkerfa, hugbúnaðarþróun og gagnagrunna, og sett upp og rekið umhverfi í Microsoft Azure. Þess vegna getum við tekið verkefni alla leið: frá netþjóni og gagnagrunni að forritinu sem starfsfólkið notar.

Azure · Microsoft 365 · Entra ID · Windows Server · Linux · SQL Server · PowerShell · Power Platform

Svona vinnum við

01

Stutt samtal

Þú segir okkur frá stöðunni. 30 mínútur, án endurgjalds og án skuldbindingar.

02

Stöðumat og tilboð

Við skoðum umhverfið og þú færð skriflegt tilboð áður en vinna hefst.

03

Framkvæmd

Við vinnum verkið, skjölum það og förum yfir niðurstöðuna með þér.

04

Rekstur eða afhending

Við sjáum um kerfið áfram ef þú vilt. Annars færðu öll gögn og aðgang í hendur.

Viltu ræða stöðuna hjá þér?

Sendu línu á info@sanata.is eða bókaðu stutt samtal. Við svörum innan eins virks dags.