Persónuvernd
Hér kemur fram hvaða persónuupplýsingar Sanata ehf. vinnur með í tengslum við þennan vef og hvaða rétt þú átt.
Ábyrgðaraðili
Sanata ehf., kt. 600913-2710, Reykjavík, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem fjallað er um hér. Fyrirspurnir um persónuvernd sendast á info@sanata.is.
Þegar þú hefur samband
Ef þú sendir okkur tölvupóst fáum við nafn þitt, netfang og það sem þú skrifar. Við notum þessar upplýsingar eingöngu til að svara fyrirspurninni og, ef til viðskipta kemur, til að sinna þeim. Grundvöllur vinnslunnar er beiðni þín og lögmætir hagsmunir okkar af því að svara henni.
Við geymum fyrirspurnir ekki lengur en þörf krefur. Upplýsingar sem tengjast viðskiptum eru geymdar í samræmi við lög um bókhald.
Heimsóknir á vefinn
Vefurinn er hýstur á netþjónum sem Sanata rekur. Eins og á flestum vefþjónum eru tæknilegar upplýsingar skráðar í annála, svo sem IP-tala, tími og vafri, til að tryggja öryggi og rekstur. Annálum er eytt reglulega.
Við notum hvorki greiningartól né auglýsingakökur. Leturgerðir eru hýstar á okkar eigin netþjóni, svo engar upplýsingar fara til þriðju aðila þegar þú skoðar vefinn.
Vafrakökur
Vefurinn setur engar vafrakökur fyrir almenna gesti. WordPress notar nauðsynlegar kökur eingöngu fyrir þá sem skrá sig inn til að sýsla með vefinn.
Miðlun upplýsinga
Við seljum ekki persónuupplýsingar og miðlum þeim ekki til þriðju aðila nema lög krefjist þess. Tölvupóstur er vistaður hjá þeirri póstþjónustu sem við notum.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim upplýsingum sem við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, og að andmæla eða takmarka vinnslu. Sendu beiðni á info@sanata.is.
Þú getur einnig lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd.
Breytingar
Við uppfærum þessa stefnu ef vinnslan breytist.
Síðast uppfært: september 2026