Þjónusta
Við tökum að okkur afmörkuð verkefni og fastan rekstur. Hér sérðu hvað við gerum, hvað er innifalið og hverjum það hentar.
Microsoft 365 og Entra ID
Uppsetning, flutningur og öryggi í Microsoft 365.
365 · Entra ID · Teams · SharePoint
Dæmi um verkefni
- Uppsetning á Microsoft 365 og tenging léna
- Flutningur pósts og gagna, til dæmis úr Gmail eða eldri póstþjóni
- Tveggja þátta auðkenning, skilyrtur aðgangur og grunnöryggisstillingar
- Teams og SharePoint: rásir, skjalasöfn og aðgangsheimildir
- Yfirferð leyfa svo þú greiðir ekki fyrir óþarfa
Hentar ef þið eruð að byrja í 365, flytja yfir, eða vitið ekki lengur hver hefur aðgang að hverju.
Azure og skýjainnviðir
Flutningur, uppsetning og rekstur í Microsoft Azure.
Azure · netþjónar · net · afritun
Dæmi um verkefni
- Flutningur netþjóna og þjónusta úr skáp eða hýsingu yfir í Azure
- Net, aðgangsstýring og hlutverk (RBAC)
- Afritun, endurheimt og vöktun
- Kostnaðarrýni: hvað er í gangi, hvað má slökkva á og hvað má minnka
Hentar ef þið keyrið netþjón á skrifstofunni, eruð með Azure-reikning sem enginn skilur, eða mánaðarkostnaðurinn hefur vaxið.
Gagnagrunnar og samþættingar
Gögn á einum stað, í kerfum sem tala saman.
SQL Server · Azure SQL · API
Dæmi um verkefni
- Hönnun og uppsetning gagnagrunna
- Flutningur gagna úr Excel-skjölum eða eldri kerfum
- Samþættingar milli kerfa í gegnum API
- Afritun, afköst og aðgangsstýring
Hentar ef mikilvæg gögn búa í Excel, sömu upplýsingar eru slegnar inn á tveimur stöðum, eða kerfin tala ekki saman.
Sérlausnir og sjálfvirkni
Lausnir sem taka við endurtekinni handavinnu.
forritun · Power Automate · Power Apps
Dæmi um verkefni
- Smærri sérsmíðuð forrit og innri vefir
- Sjálfvirkni með Power Automate eða skriftum
- Power Apps fyrir eyðublöð, skráningu og einfalda verkferla
- Skjölun svo aðrir geti tekið við
Hentar ef starfsfólk eyðir tíma í sömu handavinnuna á hverjum degi.
Vefsíður og hýsing
Einfaldir, hraðir vefir sem þú getur uppfært sjálf/ur.
WordPress · hýsing · SSL · afritun
Dæmi um verkefni
- WordPress-vefur byggður úr blokkum, svo þú getir breytt texta og myndum
- Hýsing á eigin innviðum
- Uppfærslur, afritun, SSL og vöktun
- Aðgengi og hraði í forgangi
Hentar ef vefurinn er úreltur, hægur, eða enginn veit hver hýsir hann.
Rekstur og stuðningur
Fastur tengiliður sem þekkir umhverfið ykkar.
mánaðarsamningur · fastur tengiliður
Dæmi um verkefni
- Eftirlit með uppfærslum, afritun og leyfum
- Aðstoð við starfsfólk þegar eitthvað kemur upp
- Nýir starfsmenn settir upp og aðgangi lokað hjá þeim sem hætta
- Skjölun á umhverfinu, sem þið eigið
Hentar ef þið viljið ekki ráða starfsmann í tæknimál en þurfið einhvern sem þekkir kerfin.
Verð
Afmörkuð verkefni eru unnin eftir skriflegu tilboði sem þú samþykkir áður en vinna hefst. Fastur rekstur og stuðningur er á mánaðargjaldi sem fer eftir fjölda notenda og kerfa. Fyrsta samtalið er án endurgjalds.
Ekki viss hvað hentar?
Lýstu stöðunni í nokkrum línum og við segjum þér hreinskilnislega hvað við myndum gera, eða hvort þú þurfir okkur yfirhöfuð.