Um Sanata

Sanata er íslenskt tæknifyrirtæki með bakgrunn í rekstri innviða, hugbúnaðarþróun, gagnagrunnum og Microsoft Azure. Við notum þá reynslu til að hjálpa litlum fyrirtækjum að halda tækninni einfaldri, öruggri og á hreinu.

Af hverju Sanata

Mörg lítil fyrirtæki kaupa tæknina sína í bútum. Einn setti upp póstinn, annar vefinn, og enginn man hver er með aðganginn að netþjóninum.

Við viljum vera einn aðili sem skilur heildina, frá netþjóni og gagnagrunni að forritinu sem starfsfólkið notar, og skilja eftir umhverfi sem er skjalað og þið eigið sjálf.

Fyrir hvern

Lítil og meðalstór fyrirtæki og stofnanir á Íslandi sem hafa ekki eigið tækniteymi, eða vilja einn traustan tengilið í stað margra þjónustuaðila.

Microsoft 365 · Azure · netþjónar · gagnagrunnar · sérlausnir

Svona vinnum við

Einfaldasta lausnin sem virkar

Við mælum ekki með kerfum sem þið þurfið ekki, og segjum það hreint út ef þið þurfið okkur ekki.

Þið eigið gögnin og aðganginn

Reikningar, leyfi og lykilorð eru skráð á ykkar fyrirtæki. Ekkert er læst inni hjá okkur.

Allt er skjalað

Þú færð skjölun á því sem við setjum upp, svo aðrir geti tekið við ef á þarf að halda.

Tilboð áður en vinna hefst

Afmörkuð verkefni eru unnin eftir skriflegu tilboði, svo þú veist hvað verkið kostar.

Viltu vita hvort við getum hjálpað?

Sendu línu á info@sanata.is. Fyrsta samtalið er án endurgjalds.